|
|
15.01.2008 23:26:47 / kareno
Ég er sko engan vegin að gera mig í þessum bloggheimi... Ég og Viktoría erum komnar með heimsreisusíðu http://www.123.is/karenviktoria Endilega fylgist vel með því bara 34 dagar til stefnu, ekki amalegt það 
þetta er ein eyja á Fiji sem við ætlum að kíkja á yfir eina nótt.. hún lítur alveg ómótstæðilega spennandi út og margt skemmtilegt hægt að gera þarna. Gæti verið að ég hendi inn myndum einu sinni enn, enn annars er það bara reisu síðan  Hafiði það sem allra best love karen reisufari
»
30.12.2007 16:31:18 / kareno
Það er komið nafn á prinsinn Mikael Máni Birgisson 
Innilega til hamingju með nafnið lilli bró, þú ert lang flottastur Þín systir Karen Ösp ps. minni á nýjar myndir 
»
29.12.2007 18:04:12 / kareno
Þá styttist í það að nýtt ár gangi í garð og eflaust á það eftir að verða mjög viðburðaríkt. Heimsreisa efst á blaði og ekkert annað svo sem planað en það. Ég og Viktoría kláruðum að borga ferðina okkar í dag og það eru aðeins 51 dagur til stefnu  Var á eyjunni fögru um jólin, voða kósí og gott að knúsa familíuna og vinina. Lilli bró fær svo loksins nafn á morgun. Nenni ekki af hafa þetta mikið lengra.. henti inn myndum, Jólin 2007 endilega skoðið og commentið. Annars, hafiði það bara gott um áramótin við sjáumst svo hress og kát á nýju ári, takk kærlega fyrir það gamla Love Karen
»
24.12.2007 16:11:52 / kareno
Gleðileg jól elskurnar hafiði það sem allra best um hátíðarnar 
jólakveðja Karen Ösp
»
11.12.2007 21:20:57 / kareno
jæja nú jæja.. ég var að henda fullt af myndum inn frá því við mæðginin fórum á jólahlaðborð, dansiball með dans á rósum, þynnku-módel dagur hjá mér og Erlu Signý þegar hún kíkti til mín í heimsókn í október, einhverjar nokkrar auka og svo myndir af lilla bró síðan ég var í eyjum um daginn  svo flottar  Kristjana mín, til hamingju með daginn í gær :* aðeins 10 dagar í að maður mætir á eyjuna fögru vúbbí !! love karen
»
04.12.2007 22:48:41 / kareno
Alveg er ég búin að komast að því að þá sé hættulegt að vinna á leikskóla, eða allavega svona veikindalega séð. Ég sem hef ekki verið veik í 3 ár hef verið veik tvisvar sinnum með mánaðar millibili og geri aðrir betur ! ekki að það sé gaman, því það er það alls ekki, en ég hef alveg náð mér í allt sem ég get náð mér í. Engan vegin gaman. En fyrir utan það er alveg frábært á leikskólanum, krakkarnir æði og mér er bara farið að kvíða fyrir því að fara hætta eftir rúmlega 2 mánuði. Ég tók meira að segja upp á því um daginn að fara í snjóstríð við krakkana, það var alveg einstaklega gaman og allir á móti mér. En af ferðaplönum. Þetta er allt að smella saman hjá okkur og nú bara taka sprauturnar við. Ég fór í eina síðasta miðvikudag, við lifrabólgu A og B. Sprautan var alveg huge og ég varð skíthrædd en mér til mikillar gleði fann ég ekkert fyrir henni og var mikið hissa þegar hún sagðist vera búin. Þetta kostaði mig aðeins 6300 krónur og ætla ég því hér með að biðja um sprautur í jólagjöf. Það eru aðeins 9 to go. Og svo bíð ég og Viktoría eftir því að Danni félagi okkar (sem ég er alveg viss um að sé svaka gæi og komi með okkur á endanum út) í London svari okkur með ferðaplön. Hann er frá STAtravel sem er sem sagt ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í svona round the world trip hrikalega mikið sniðugt. Ég bið bara að heilsa ykkur að sinni, aðeins 20 dagar til jóla vúbbí ! og ein pæju mynd í lokin þar sem ég var að klippa á mig topp.. geggjuð skvísaaa lovlílovlí karen
»
20.11.2007 19:31:57 / kareno
Þá er enn ein helgin liðin. Josefin, vinkona mín sem var með mér í Noregi í sumar, kíkti til mín inn á Höfn á laugardaginn. Hún er frá Svíþjóð og er sem sagt að vinna hérna rétt fyrir utan Höfn. Við kíktum aðeins í búðir, elduðum síðan góðan mat og skelltum okkur á endanum á ball á hotelinu sem var svaka stuð. Henni fannst alveg aðeins gott að komast út því þetta er frekar einangrað þarna sem hún býr og skemmti sér konunglega á svona íslensku balli  Annars er það að frétta hjá mér að „heimsreisan“ hjá mér og Viktoríu er alveg að komast í gang. Eða Asíu-Ástralíu ferðin okkar, kannski frekar hægt að kalla hana það. Við erum sem sagt búnar að panta flug til London 18.febrúar og heim til Íslands aftur frá London 20.maí. Lokahnykkurinn á öll hin flugin eru svo alveg að koma og síðan er bara það helsta eftir, fara í sprauturnar sem eru rándýrar og 10 talsins aðeins, kaupa það helsta og skipuleggja ferðina að mestu. Þetta verður bara endalaust ævintýri og eflaust mikil áreynsla um leið. 
thailand, hér verða ég og viktoría að spóka okkur  Síðan er það held ég endanlega ákveðið að ég ætla vera um jólin í Eyjum og hér um áramótin, reyna svona aðeins að dreifa þessu þar sem ég hef held ég verið síðustu 4 ár í Eyjum um áramót og öfugt hér á Höfn. Annars er það ekki mikið lengra... Love Karen
»
12.11.2007 21:37:02 / kareno
Þá er skemmtilegasta ferð ársins búin ! Hin árlega bústaðarferð Afródítna sem var aðsjálfsögðu mikið líf og mikið fjör eins og alltaf Ég keyrði auðvitað ein og yfirgefin alla leið frá Höfn á föstudeginum til þess að hitta krúsídúllurnar mínar. Ég lagði af stað í háskaför í mikla hálku og á tíma var ég á því að snúa við en hugsaði að það yrði auðvitað jafn slæmt til baka þannig að ég hélt áframn og aðsjálfsögðu vildi ég ekki missa af bústaðarferðinni. En þegar ég var komin á Vík var bara blossandi færi svo ég gaf bara í en var þó í 5 tíma á leiðinni í staðin fyrir 4 tíma venjulega. Mætti ég svo í bústaðinn og kvaðst þurfa áfallahjálp en lagaðist þó fljótt eftir einn bjór. Ég kom akkurat á réttum tíma og voru skvísurnar að elda fajitas sem var afar ljúffengt. Eftir matinn tók við skemmtiatriði sem auðvitað voru algjör snilld. Silja Rós var upphafið og var með svona svaka krúttlegt þar sem við áttum allar að skrifa einhvað sætt um hvor aðra og svo fengum við það á blaði, krýning á kórunum var síðan og var auðvitað ekkert sparað skotin enda var þetta alveg óendanlega fyndið. Berglind og Anna Kristín voru svo með alveg ótrúlega flott myndband með fullt af myndum okkur, það var algjört æði. Síðan var ég ein og yfirgefin með söguna um okkur sem var framtíðarsaga mikil, og auðvitað voru skotin ekki heldur spöruð þar og hlegið alveg hrikalega mikið. Síðan var bara skemmt sér, farið í pottin og djammað langt fram á nótt... eða misjafnlega langt. Vöknuðum alveg eiturhressar daginn eftir og tók þá kúreríið við. Spilað, étið, horft á sjónvarpið og borðað meira. Alveg geggjað að vera í svona mikilli leti. Okkur til mikillar ánægju sáum við mús á pallinum og voru sumir alveg að fara yfirum en það var bara yndilsega fyndið. Ég, Berglind, Viktoría og (var það ekki einhver önnur ??) fórum í það hlutverk að fara út og hoppa á pallinum til þess að reka mýsnar í burtu, stóðum okkur vel í því hlutverki. Eftir nokkur hopp fórum ég og Silja Rós í okkar mikilvæga starf, grillið. Enda vanir grillmeistarar hér á ferð. Svaka góður kvöldmatur hjá okkur og stuðið hélt svo áfram fram á rauðanótt eins og vanalega. Ég vaknaði svo fyrst allra og þurfti að fara keyra til baka, ekki alveg sú hressasta. Fór ég svo og náði í hana Guðrúni mína og við brunuðum á Selfoss til þess að ná í driverinn okkar hann Palla Auðvitða var farið á KFC fyrst mér til mikillar gleði og brunað svo af stað út í óvissuna. Sama skíta færðin til baka... en við komumst þó heil á höldnu  Takk alveg super duper mikið fyrir þessa mögnuðu helgi, get bara ekki beðið eftir næsta ári  Komnar inn svo nýjar myndir frá eyjum og ak-city og auðvitað RITSKOÐAÐAR bústaðarmyndir.. þið látið mig bara vita ef þið viljið ekki hafa einhverja þarna  Ástarkveðjur Kæja pæja
»
05.11.2007 17:33:49 / kareno
hæhó ! jei ég er loksins komin með tölvu í hendurnar, mikill léttir... silvía mín, til hamingju með 20 árin á laugardaginn :* helst í fréttum að ég skellti mér á eyjuna fögru þar síðustu helgi að skoða lilla bró og hitta alla. það var voða gaman og einstaklega gaman að skoða prinsinn, hann er bara æði ! ég var líka svo super góð systir og gaf honum auðvitað týsgalla að gjöf, geggjaður töffari í honum. Drengurinn er líka kominn með síðu http://www.barnanet.is/4847 ef þið viljið fylgjast með.. skellti mér svo á akureyri um helgina að heimsækja ágúst frænda, loksins ! það var svaka fjör og fórum við á halloween ball á föstudeginum í sjallanum, legið í leti gjörsamlega allan laugardaginn og svo skellt sér á smá pöbbarölt um kvöldið... voða gaman og kem með myndir af því bráðlega þar sem ég er alveg úber töff lögga og ágúst og palli pimpar, bara fyndið endalaust flakkið á manni, bústaðarferð um helgina ! hlakkar sko alveg endalaust til og að djamma loksins með öllum stelpunum og tala ekki um að hitta hana kristínu mína sem ég er ekki búin að hitta síðan í apríl áður en ég fór út !!!! eigum við einhvað að ræða það... þið skemmtið ykkur bara annars hvar sem þið eruð kveðja karen ps. spáið í því, það eru jól í næsta mánuði !!
»
24.10.2007 21:10:25 / kareno
Þá loksins ákvað ég að setja fyrir framan tölvuna og skrifa nokkrar línur.. Það helsta sem er í fréttum er að ég eignaðist lítin bróðir aðfara nótt laugardags, eða 20.okt. Afar stolt mikið stóra systir. Prinsinn var 13 merkur og vegna þreytu kl. 8 um morgun þegar pabbi hringdi og sagði mér fréttirnar man ég bara ekki hvað hann var stór, klaufinn ég ! En ég er búin að fá sendar myndir af honum alveg splunku nýjum og svo ætla ég á Eyjuna fögru um helgina og skoða lillu músina mína alveg splunku nýr Elfar Franz ánægður með litla bróðir Óli með prinsinn  svo má auðvitað ekki gleyma því að Guðbjörg Erla og Ágúst voru að skíra litlu prinsessuna sína, Emilíana Erla. Innilega til hamingju með það aftur :* Hún Erla mín kom til mín langa helgi þar síðustu helgi og var ekkert smá gaman að fá hana og rifja upp gamla góða tíma. Tókum okkur dvd á fimtudaginn og ég gerði Erlu heldur betur hrædda en það var samt bara gaman og voða kósí á föstudeginum var síðan farið á Pakkhúskvöld með skvísunum og var aðsjálfsögðu svaka fjör. Laugardagurinn byrjaði auðvitað á ferð í Hafnarbúðina þar sem þynnkumaturinn var tekinn, farið var svo á rúntinn eftir það og tekið smá "model" flipp sem var alveg endalaust gaman.. kem með myndir af því skemmtilega atviki vonbráðar. Mamma var svo svo yndisleg að elda handa okkur humarsúpu í kvöldmat sem var bara æði. Gerðum við svo okkur fínar og sætar og skelltum okkur á ball, brjálað stuð á balli.. eða ég skemmt ime´r allavega konunglega og held að flestir hafi gert það takk alveg æðislega Erla mín fyrir heimsóknina, bara gaman :* er svo komin með fullt af nýjum myndum sem eru hér neðst: Myndir 2007 - 1. fulltfullt kveðja Karen stóra systur 
»
07.10.2007 17:23:31 / kareno
jújú ég er á lífi ! þannig er það nú bara að harði diskurinn í tölvunni minni er hruninn þannig að ég er aldrei í tölvu núna, frekar svekkjandi annars bara allt gott að frétta og auðvitað alltaf nóg að gera.. skellti mér í borg óttans um síðustu helgi með Guðunum mínum. það var samt frekar svekkjandi að allar mínar eyjapæjur sem búa í borginni ákvöðu að skella sér til eyja þessa helgi þannig ég hitti þær ekkert nema hana Viktoríu mína aðeins og svo Kristjönu fyrir algjöri tilviljun en það var samt svaka gaman. hitti síðan elskurnar mínar þá Fróða og Arnar sem var alveg agalega gott.... ætlaði bara rétt að láta vita af mér ! síðan er hún Erla elskan mín að kíkja til mín næstu helgi, hlakkar ekkert smá til og verður bara gaman að taka upp gamla takta frá fyrra sumar og fara góða rúntinn okkar haha þú veist hvað ég meina stefnan er svo að kíkja til Eyja helgina eftir það og þá ef ég verð heppin verð ég búin að eignast lítið systkin, það væri nú gaman. þá verður líka nýjasta skvísan í Afródítunum skírð býð bara spennt eftir því nafni ciao, Karen
»
20.09.2007 17:43:56 / kareno
Já það er klárlega alveg nóg að gera.. á föstudaginn síðasta skellti ég mér í óvissuferð með elsku kellunum mínum á Krakkakoti og kellunum á Lönguhólum (hinn leikskólinn). Ferðin byrjaði á því að okkur var skipt í 2 lið og keppnin byrjaði í stjórnendaleik; tveir með bundið fyrir augun og einn stjórnaði hvert við áttum að fara, því miður tapaði mitt lið. Eftir það lærðum við svo kúrekadans út á miðju mjólkurplani sem þó gekk hálf brösulega hjá sumum, þá sérstaklega mér. Síðan var haldið upp í rútu og út í óvissuna. Þar stoppuðum við hjá einhverju ljótu hesthúsi og allir aðsjálfsögðu búnir að ákveða að við værum á leið á hestbak, en svo var ekki því betra beið okkar. Freiðivín og jarðaber namminamm. En og aftur voru keppni á milli liða þar sem átti að sprengja blöðru, tvær manneskjur, með mallanum. Mér og Elvu, mín elskulega fyrrverandi mágkona, gekk svona líka ágætlega en þó tapaði okkar lið enn og aftur. En eins og við sögðum allar, “það er betra að lenda í 2. sæti en því 3.”. Eftir að hafa aðeins notað úti “kamarinn” var skellt sér aftur upp í rútu og haldið lengra út í sveit. Þar stoppuðum við síðan þar sem voru 4 heitapottar úti í náttúrunni, voða kósí. Allir skelltu sér nú ekki ofan í en auðvitað fór mín ofan í og varð söngpotturinn fyrir valinu þar sem hún Hulda Björk var. Við sungum hástöfum með skvísunum sem fóru ekki ofan í á meðan hinn potturinn var meira svona spjall pottur eins og við kölluðum það. skvísurnar í spjallpottinum Eftir að hafa þanið raddböndin nóg var enn og aftur skellt sér upp í rútu en þó í síðasta sinn og endað heima hjá einni á Lönguhólum. Þar var borðuð pizza, sungið meira og skemmt sér einhvað fram eftir. Svaka stuð. spilað á bongó og dansað með Ég og Elva létum okkur nú hverfa upp úr 10 þar sem það var Pakkhúskvöld hjá framhaldsskólanum. Það var bara ágætt en ákvað ég að vera smá skynsöm og fara í fyrra fallinu heim þar sem ég var að hafa fara í fótboltaferð daginn eftir, eða klappstýruferð eiginlega. Ég, Guðrún og Guðný skelltum okkur á Egilsstaði á laugardeginum til þess að reyna hvetja okkar elskulegu Sindra stráka til dáða til þess að halda sér upp í deildinni. Á leiðinni austur var smá rok og slydda en þó ekkert sem festist á jörðinni og var aðeins rétt hvítt efst á öxinni þegar við fórum þar yfir klukkan rétt rúmlega 13. Við þrjár mættum galvaskar á leikinn og ég í Sindra búning aðsjálfsögðu og með góðu kúabjölluna undir hendi. Eftir um 35 mínútna leik fékk ég að slá á kúabjölluna mér til mikillar ánægju þar sem hann Björn okkar Pálson kom boltanum í netið af einstrakri prýði. Leikurinn leit aldeilis vel út í fyrri hálfleik og við að halda okkur upp í 2. deild. Leikurinn endaði þó ekki eins og ætlað var og var það frekar mikið svekkelsi en svona er þetta nú bara. Við hoppuðum því upp í bíl og ætlaði Sindri með okkur til baka (ekki þó allt Sindra liðið, heldur bara Sindri Guðrúnar kæró . Á undan okkur í bíl voru Atli A, Steinar, Atli H og Grétar og þrumufleygnum hans Atla, eða framtíðarbílnum hans eins og Guðrún segir. Auðvitað var farið yfir öxi sem við bjuggumst við að væri aðeins smá snjór en alltaf bætt í snjóinn því ofar sem við komum á fjallið og þegar við vorum að fara niður fyrstu brekkuna sjáum við Atla og strákana úti og við á bremsuna og þá munaði engu að við höfðum lent á Volvonum. Strákarnir voru þá settir í það hlutverk að standa fyrir framan bílin og ýta á móti svo hann rynni nú ekki til. Við komumst heil á höldnu niður en frá Djúpavogi til Hafnar var slydda og rok svo ég var með hjartað í buxunum alla leiðina. Þegar heim var komið fór ég í matarboð til Madher með leikskólakellunum, í eþíópískan mat. Frekar spes en mjög gott. Auðvitað þegar líða tók á kvöldið var farið að drekka sorgum sínum í fínasta partýi hjá Ogga. Ball um helgina vúhú, svo bærinn næstu helgi... úff mikið að gera hjá minni
Kveðja Karen busy
»
12.09.2007 18:36:58 / kareno
Fleirri nýjar myndir frá Höfn.. myndir frá 2 böllum og læti !! Þær eru undir ball ball Hver segir að það sé ekkert að gerast á höfn hohoho  Óvissuferð á föstudaginn með leikskólakellunum, ætla síðan að skella mér með Guðrúnu á Egilstaði á laugardaginn til þess að horfa á elsku Sindra strákana og kvetja þá óendanlega mikið svo þeir drullist nú til þess að vinna kannski þennan leik !! Eftir leikin er ég síðan líklega að fara til hennar Mahder, sem er að vinna með mér á leikskólanum, að borða eþíópískan mat.. hljómar spennandi nóg að gera hjá mér framundan karen
»
09.09.2007 20:27:20 / kareno
jæja þá er mín búin að setja síðustu myndirnar frá norge loksins inn !! undir síðustu dagarnir ávallt líf og fjör á Höfn. Vinnan er bara rosa fín, með fínum kellum og æðislegum krökkum, en þó stór efast ég um að ég myndi fara leggja það fyrir mér að verða leikskólakennari neinei. Gulur dagur var á föstudaginn og auðvitað mætt mín bara í Afródítubúningnum í ár voða sátt með lífið. Síðan var skellt sér ball í gær með hinni einu sönnu hljómsveit Dans á rósum og auðvitað svaka fjör. Meira svekkt með daginn í dag þar sem við fórum á leik Sindra - Magna og var þetta svona eigilega úrslita leikur hvort liðið myndi halda sér upp í deildinni og þurfti Sindri að asnast til að tapa.. djöfull var ég svekkt. Það gengur bara ekkert með þessi fótbolta lið mín - Sindra né ÍBV, held ég þurfi að íhuga skipti !! endilega haldið áfram að kvitta fyrir komuna Karen
»
28.08.2007 19:59:34 / kareno
Þá er maður loksins komin heim eftir ansi mikið ferðalag ! Kom heim frá Bergen 17. ágúst eftir 2 mikla rigningardaga. Úff hef aldrei séð svona mikla rigningu án gríns, fórum á fótboltaleik með Brann og það var nú varla hægt að sparka í boltan. Þegar ég var loksins komin á klakan var farið að hitta alla, agalega gaman að sjá pabba og co. og fór svo á skrallið um kvöldið með Arnari, Fróða og félögum. Heldur betur stuð. Svo á laugardeginum fékk ég loks að hitta pjásurnar mínar þær Erlu, Silju, Önnu Kristínu og Viktoríu og það liggur við að ég hafi bara farið aðeins hjá mér að hitta þær Menningarnótt var svo planið og var agalega gaman að djamma með skvísunum aftur og heldur betur hlegið mikið undir lok næturinnar, Erla átt orðu skilið fyrir þetta kvöld. Á mánudeginum var ferð minni svo haldið á Akureyri þar sem mín ætlaði að fara stunda nám við Háskólan á Akureyri og fór ég í nýnema vikuna galvösk en alveg hálfshugar að fara læra og hvort ég væri að gera rétt með því að fara í skóla. En jæja ég ákvað að gefa þessu séns. Eftir mikla umhugsun og nokkra daga í Ak-city var ferð minni haldið á fallegustu eyju í Atlandshafi, eða svo finnst mér allavega, Vestmannaeyjar að hitta restina af vinahópnum sem var alveg ómótstæðlega gaman. Aðsjálfsögðu var ekkert hætt að fara á djammið (enda komin í góða æfingu eftir veturinn) og kíktum við á hinn eina sanna Lunda á laugardeginum ég, Anna Kristín, Viktoría, Helena og Silja Rós. Algjört snilldar kvöld og auðvitað sem setti punktinn algjörlega yfir i-ið var það að Guðbjörg okkar eignaðist litla prinsessu þá um nóttina, en og aftur til hamingju með það :* að því tilefni þá var auðvitað notað hvert tækifæri í því að skála fyrir þeim. Daginn eftir var svo kíkt á gripinn og jiminn svo mikil dúlla. Þá var ferð minni en og aftur haldið einhvert annað (þvílíkt ferðalag á manni) og þó þá á leiðarenda, til mömmu litlu austur á Höfn. Mikið agalega var gott að vera komin á leiðarenda. Mætti svo í skólan á mánudaginn en ákvað þá eigilega að ég væri ekki tilbúin að fara í skóla og er bara komin með vinnu á leikskólanum hér. Verð allavega fram að áramótum, svo er bara algjörlega óráðið hvað ég geri eftir það. Allir vegir opnir. Jæja ætlaði bara koma með svona smá blogg eftir heimkomu og stefni svo á að henda síðustu myndunum frá Norge inn bráðlega, eða þegar netsamband er komið í mína tölvu. love karen
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|